Ritskoðarinn eftir Anthony Neilson..
Kynlíf er tjáning...Ást er tilfinning
Sokkabandið kynnir Ritskoðarann eftir Anthony Neilson.
Frumsýning í Sjóminjasafninu, Grandagörðum 8, miðvikudaginn 31.maí kl.21.00.
Er klám list? Er hægt að blanda saman kynlífi og ást í heimi þar sem
líkaminn er söluvara og lifir ástin það af? Hvað þarf til að komast
af í slíkum heimi? Og hvað þarf til að vera á skjön? Við erum öll
manneskjur með eðlilegar þrár og langanir, en þegar búið er að
afvegaleiða þessar eðlilegu tilfinningar, hvert fara þær þá?
Ritskoðarinn (Censor) er áleitið og kraftmikið verk sem fjallar um
tabúin í okkar samfélagi og hvernig nútímamaðurinn kemst af í
samfélagi sem upphefur tækifærissiðgæði. Sýningin er stranglega bönnuð
börnum.
Einungis verða 5 sýningar á verkinu. Frumsýning er 31.maí og aðrar
sýningar verða 2.,6, 9. og 11.júní. Sýningar hefjast kl.21.00.
Miðasala er við innganginn.
Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson og hljóðmynd er eftir Hall
Ingólfsson. Leikmynd gerði leikhópurinn. Þýðinguna önnuðust Stefán
Hallur Stefánsson og Vignir Rafn Valþórsson
Leikarar eru Stefán Hallur Stefánsson, Elma Lísa Gunnarsdóttir og
Arndís Hrönn Egilsdóttir.
Channel: Entertainment
Uploaded: November 30, 1999 at 12:00 am
Author: krumptv
Length: 00:39
Rating: 5.00
Views: 299
Tags: Anthony Elma er Gunnarsdóttir Krumptv Kynlíf Lísa Neilson. og...Ást Ritskoðarinn tilfinning
Video Comments
|